Liverpool fékk roma

Liverpool dróst á móti Roma og Bayern Munich keppir við Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Í undanúrslitum Evrópudeildar UEFA leikur Marseille við Salzburg og Arsenal etur kappi við Atletico Madrid. Fyrri Arsenal-leikurinn fer fram í Lundúnum 26. apríl og sá síðari í Madrid 3. maí.

Dregið var um undanúrslitaleikina í morgun.