Litlar líkur á samningum í bráð

Talsmenn Flóabandalagsins segja samningaviðræður nýliðinnar helgar svo að segja engu hafa skilað. Af þeim megi ljóst vera að það þurfi marga daga viðræður í viðbót svo einhver von sé að deilendur nái saman um nýjan kjarasamning.


Innan Flóabandalagsins eru öll fjölmennustu verkamannafélögin í kringum Faxaflóann, þar með talið á höfuðborgarsvæðinu, en verði af verkfalli þeirra á næstu dögum er slagkraftur þess meiri en verið hefur á almennum vinnumarkaði í fjölda mörg ár. Sigurður Bessason, formaður Eflingar, eins af aðildarfélögum bandalagsins segir að allt eins megi búast við löngu verkfalli miðað við þær móttökur sem tillögur þeirra hafa fengið síðustu daga.


Af hálfu atvinnurekenda er hljóðið í þá veru að betra sé að bíða en fallast á alltof háar launakröfur Eflingar og annarra félaga sem muni verða mun kostnaðarsamari fyrir samfélagið en nokkurra vikna verkfall. Meginatriði sé að koma í veg fyrir óábyrga samninga sem skaði hag allra landsmanna, einnig og ekki síst þess verkafólks sem hér um ræðir.