Litlar íbúðir þykja fjársjóður

Fasteignaverð heldur áfram að hækka á vissum svæðum innan borgarmarkanna, einkum og sér í lagi í grennd við miðborgina, þar sem 100 fermetra íbúðir eru eins og hver annar fjársjóður. Slíkar eignir seljast á stundinni, komi þær á sölu, segir reyndur fasteignasali í samtali við hringbraut.is. Starfsmenn í hans stétt telji að meðalstórar íbúðir á þessum slóðum eigi eftir að hækka enn frekar í verði, slík sé spurnin eftir þeim að þeirra sögn. Ástæðurnar eru margþættar; mikil ásókn leigusala er í eignir nálægt miðbænum sem óspart eru notaðar í útleigu fyrir ferðamenn, en eins eru fjárfestar í auknum mælir farnir að festa fjármuni sína í þessum eignum.