Afar litlar breytingar eru á fylgi stjórnmálaflokka milli mánaða og breytist fylgi flokka á bilinu 0,1 til 1,1 prósentustig milli mánaða að því er fram kemur í nýjum nýjum þjóðarpúlsi Gallup.
Rösklega 35% segjast myndu kjósa Pírata, tæplega 25% Sjálfstæðisflokkinn, liðlega 11% Vinstrihreyfinguna - grænt fram-boð, rúmlega 10% Samfylkinguna, tæplega 10% Framsóknarflokkinn og tæplega 5% Bjarta framtíð. Ríflega 4% segjast myndu kjósa aðra flokka en nú eiga sæti á Alþingi.
Ríflega 11% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og tæplega 11% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.
Stuðningur við ríkisstjórnina breytist lítið á milli mánaða en rösklega 35% þeirra sem tóku afstöðu segjast styðja hana.