Sóknarfæri íslensks iðnaðar verða umfjöllunarefni tveggja þátta raðar sem hefst á Hringbraut í kvöld, en þar mun Sigmundur Ernir eiga stefnumót við breiðan hóp stjórnenda í þessari mikilvægu atvinnugrein og meta jafnt stöðu hennar og skyggnast inn í framtíðina.
Íslenskur iðnaður skapar fjórðung landsframleiðslunnar hér á landi og fimmtungur vinnuaflsins heyrir til fjölþættum störfum hennar. Þessi kraftmikla og skapandi atvinnugrein sækir nú fram af miklu afli á mörgum sviðum, enda eru sprotafyrirtækin og nýsköpunin ein helsta birtingarmynd hennar ásamt fyrirtækjum af öllum stærðum sem hafa mikil margfeldisáhrif í íslensku atvinnulífi.
Í þætti kvöldsins verður ekki síst merkilegt að heyra framtíðarhugmyndir Hilmar Veigars Péturssonar, forstjóra CCP og Stefáns Sigurðssonar, forstjóra Vodafone um greinina, en þeir ásamt Almari Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins draga upp afar spennandi sviðsmynd af því sem koma skal í þessari vaxandi atvinnugrein sem laðar til sín æ fleiri betur menntaða einstaklinga sem sækja inn í hana sakir samkeppnishæfni um góð kjör. En hvernig verður vinnustaður framtíðarinnar? Mætir fólk til vinnu í sýndarveruleika? Gildir einu hvar í heiminum þú býrð? Og hversu grænn getur iðnaðurinn orðið í framtíðinni?
Þessum og fleiri spurningum verður svarað í klukkustundarlöngum þætti kvöldsins þar sem Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðarráðherra og Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnarins verða einnig gestir í áhugaverðu samtali um greinina, en meðal annarra viðmælenda Sigmundar Ernis í kvöld og í seinni þættinum að viku liðinni verða Aðalheiðurr Héðinsdóttir, forstjóri Kaffitárs, Guðbjörg Óskarsdótttir, forstöumaður álklasans, Gylfi Gíslason, forstjóri Jáverk, Jón B. Stefánsson, skólastjóri Tækniskólans, Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis og Kristinn Aspelund, sölustjóri Marorku.
Þáttur kvöldsins, sem ber nafnið Litla iðnþingið er á dagskrá klukkan 21:00 í kvöld og verður seinni þáttuinn sendur út á sama tíma að viku liðinni.