Lítill drengur sem lenti í umferðarslysi í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi á laugardaginn er látinn. Hann lést á Landspítala í dag. Hann hét Mikolaj Majewski og var á öðru ári. Móðir hans, Kamila Majewska, lést á laugardagskvöld.
RÚV greindi frá og vísar í tilkynningu frá pólska sendiráðinu.

Kamila, Mikolaj og Tomek
Fjölskyldan var ný komin til landsins og var á leið heim til sín á Flateyri eftir að hafa dvalið með ástvinum sínum í Póllandi yfir jólin. Bíll fjölskyldunnar fór útaf veginum í mikilli hálku í Skötufirði og hafnaði úti í sjó.
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunar voru kallaðar til og Samhæfingarmiðstöð almannavarna í Skógarhlíð virkjuð.
Vegfarendur sem komu fyrstir að slysinu þurftu að aka áfram þar til símasamband náðist til þess að hringja á Neyðarlínuna. Hálka og krapi töfðu fyrir björgunarliði á leið á slysstað.