Lítil sáluhjálp í gröðum ólafi skúlasyni

Mikael Torfason rithöfundur og blaðamaður talaði tæpitungulaust í viðtali við Egil Helgason í bókmenntaþættinum Kiljunni á Rúv í gærkvöld. Mikael ræddi þar m.a. samanburð alþýðufjölskyldna við efri stéttir í umræðu um bók sem hann hefur gefið út. Hann segist hafa borið skaða af trúarhyggju forelda sinna. Hann var „að fyllast af blóði og saur“ vegna sjúkdóms sem ungt barn en trúarástæður foreldranna sem voru í Vottum Jehóva komu í veg fyrir rétta læknismeðferð, þar sem ekki mátti gefa blóð.

Eitt mesta hneykslismál innan þjóðkirkjunnar á síðari tímum bar með óbeinum hætti á góma í þætti Egils Helgasonar. Það var þegar Mikael ræddi stéttskipta þjónustu stofnana eftir því hvers konar heimili áttu í hlut. Hann nefndi náinn ættingja sinn og missi sem ættinginn, kona, hefði orðið fyrir. Konan leitaði sér sáluhjálpar „en það eina sem hún fékk var graður Ólafur Skúlason sem fór að reyna við hana,“ sagði Mikael í viðtalinu og vísaði þar til starfa prestsins sem síðar varð biskup.