Lítil hreyfing á fylgi flokkanna

Nýjasta fylgiskönnun MMR sýnir litlar breytingar á fylgi stjórnmálaflokkanna, svo litlar raunar að þær teljast allar vera innan vikmarka. Píratar eru enn sem fyrr stærstir og Björt framtíð minnst.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,3%, borið saman við 21,2% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 11,6% borið saman við 11,8% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 10,5%, borið saman við 11,1% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,0%, borið saman við 11,3% í síðustu könnun og fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 6,8%, borið saman við 6,7% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%.