Svo gæti farið að gestir á hótelum og veitingahúsum komi að tómum kofanum á miðvikudag þegar verkfall 1100 kokka, þjóna, bakara og kjötiðnaðarmanna innan Matvís hefst, en hvorki hefur gengið né rekið í samningaviðræðum félagsins við viðsemjendur.
Matvís hefur verið í samfloti þeirra iðnaðarmanna sem eru með lausa samninga, en það rofnaði raunar fyrir helgi þegar Samiðn, Grafía og Félag hársnystisveina afréðu að ljúka samningum við Samtök atvinnulífsins fyrir 12. júní og frestuðu þau félög þar með boðuðum verkfallsaðgerðum. Eftir standa þá með Matvís Rafiðnaðarsambandið og Félag vélstjóra og málmtæknimanna sem öll stefna ótrauð á vinnustöðvun á miðvikudag.
Verkfall Matvís hefur strax áhrif á rekstur ferðaþjónustunnar í landinu, en hefur þó mismikil áhrif innan hótela og veitingahúsa. Nemar í eldhúsum fara ekki í verkfall, svo og allt aðstoðarfólk þar sem gefur hótelunum færi á að halda úti lágmarksþjónustu, en ljóst er að mörg hótel og veitingahús eiga erfitt með að mæta þessum aðgerðum og munu þurfa að vísa gestum frá vegna manneklu innandyra.