„Hann var mikill kappi, sem vann í raun og veru mikið afrek í atvinnusögunni okkar með því að stofna Coldwater [Seafood Corporation], en frysting sjávarafurða var aðal gjaldeyrisöflunarvegur þjóðarinnar á löngu tímabili. Hann er nú flestum gleymdur því miður en það gerist nú með ýmsa að þeir gleymast í samtímanum,“ segir Jakob F. Ásgeirsson, höfundur nýrrar ævisögu um Jón Gunnarsson, eins helsta frumkvöðuls Íslendinga í atvinnumálum á síðustu öld.
Jakob er gestur Björns Jóns Bragasonar í frétta- og umræðuþættinum 21 í kvöld, þar sem hann ræðir þennan merka mann og ævisöguna sem kom út nú fyrir skemmstu.
Jón var framkvæmdastjóri Síldarverksmiðja ríkisins á þeim árum þegar síldarvinnsla var mikilvægasti útflutningsatvinnuvegur landsmanna og síðar byggði hann upp, nánast af eigin rammleik, stærsta fyrirtæki Íslendinga í útlöndum, Coldwater Seafood Corporation í Bandaríkjunum, dótturfyrirtæki Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna. Með viðamiklu sölustarfi skapaði hann íslenskum sjávarafurðum nafn á stærsta markaði heims. Það lagði grunn að uppbyggingu hraðfrystiiðnaðar sem áratugum saman var burðarás íslensks atvinnulífs og grundvöllur hagvaxtar í landinu.
Fetaði menntaveginn þrátt fyrir kröpp kjör
Hugur Jóns hneigðist snemma til mennta og þrátt fyrir að alast upp við kröpp kjör nam hann í Samvinnuskólanum í Reykjavík, þar sem Jónas frá Hriflu var skólastjóri. „Þetta var stundum kallaður foringjaskóli Sambandsins og kaupfélaganna en þarna gafst „fátækum“ tækifæri til að komast til mennta,“ segir Jakob og nefnir fleiri mæta einkaframtaksmenn sem voru skólafélagar Jóns, t.d. Albert Guðmundsson, Sigfús í Heklu og Silla og Valda. Auk þess hafi Tryggvi Þórhallsson og Héðinn Valdimarsson verið meðal kennara í skólanum.
Jónas lét sér annt um nemendur sína og hag þeirra og sá til þess að Jón fengi styrk til náms í tæknifræði í Osló. Þaðan hélt Jón til Bandaríkjanna. „Hann lýkur þaðan námi í verkfræði frá MIT, sem er þá og alla tíð síðan fremsti verkfræðiháskóli í heimi,“ segir Jakob og bætir við að gráðan hafi þó verið ekki viðurkennd af kollegum hans í verkfræðistétt á Íslandi fyrr en eftir seinna stríð, þar sem þeir litu niður á nám í Bandaríkjunum.
Nánar er rætt við Jakob um Jón Gunnarsson í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.