Lítið hefur heyrst í Ólafi Arinbirni Sigurðssyni lögfræðingi sem skyndilega hefur verið flaggað sem meintum Óla í símtali Bjarnfreðar Ólafssonar, lögmanns hjá Logos, og Eggerts Hilmarssonar sem þá var framvkæmdastjóri lögfræðisviðs hjá Kaupþingi í Lúxemborg. Eins og allir vita núna er lykilatriði um hvaða Óla sé að ræða í þessu samtali að mati Ingibjargar Kristjánsdóttur, eiginkonu Ólafs Ólafssonar sem nú situr af sér dóm vegna Al-Thani málsins.
Bjarnfreður var dæmdur ásamt Lýð Guðmundssyni í Exista fyrir réttu ári fyrir brot gegn lögum um hlutafélög. Hann er ekki í nokkrum vafa um að sá Óli sem um ræðir í samtalinu sé félagi hans á lögfræðistofunni Logos, en alls ekki Ólafur Ólafsson, og furðar sig á því að dómarar í Hæstarétti skuli ekki hafa áttað sig á því.
Það er hinsvegar spurning hvað Ólafi Arinbirni finnist um að vera flaggað á þennan hátt í umræðunni um hvort flagga hefði átt viðskiptum Ólafs Ólafssonar í téðu Al-Thani máli.