Nærri 4000 íbúðir, herbergi eða hús voru á lista hjá Airbnb hér á landi samkvæmt síðustu upplýingum frá bandaríska fyrirtækinu. Örlítill hluti þessara gistikosta hefur hins vegar verið skráður samkvæmt nýjum lögum um heimagistingu. Lögin hafa þó nýtekið gildi nú um áramótin og vert að bíða og sjá hverju fram vindur. Turisti.is segir frá þessu og að aðeins hafi verið sótt um leyfisnúmer fyrir 28 eignir enn sem komið er.
Öllum er núna skylt að fá skráningarnúmer fyrir eign sem auglýst er til leigu að viðurlögðum sektum allt að einni milljón króna. Ríkisskattstjóri segir enn fremur að skráningu á gistináttaskrá sé ábótavant og gefi ekki rétta mynd af framtöldum tekjum vegna þessarar starfsemi sem greitt er fyrir í erlendum gjaldeyri.