Lítið að marka verðkannanir así

Jón Gerald Sullenberger, kaupmaður í dagvöruversluninni Kosti gefur lítið fyrir verðkannanir ASÍ að því er fram kom í viðtali við hann í þættinum Atvinnulífið sem frumsýndur var á Hringbraut að kvöldi 3. mars. Þar kvað Jón Gerald fast að orði; kannanirnar væru gerðar þannig að búið væri að ákveða körfuna sem tekin yrði til skoðunar og starfsmenn stóru verslananna breyttu verðunum rafrænt á meðan á könnununum stæði. Jón bætti við: "Einn kúnni lét þau orð falla að það væri nánast heppni ef verðið sem auglýst væri í hillunni, væri enn í gildi þegar komið væri á kassann”. Jón hvatti í þættinum neytendur til að gera sínar eigin verðkannanir og dæma svo eftir á.



Hægt er að nálgast þáttinn í heild sinni undir flipanum sjónvarp hér á hringbraut.is