Litabækur eru nýjasta æði kvenna

Konur um heim allan hafa tekið upp á því að lita af miklum móð í litabækur fyrir fullorðna. Þessi litabylgja er komin til Íslands og konur á öllum aldri lita í gríð og erg. Eru þær gengnar í barndóm?
 
Þetta æði má rekja til einnar bókar sem hefur farið sigurför um heiminn á undanförnum mánuðum, svo mjög að undrun sætir. Bókin ,,Leynigarður\" eftir Johanna Basford hefur nú þegar komið út í 36 löndum og íslenskar konur slaka á með liti í Leynigarðinum og hvíla sig á tölvum, símum og tækni meðan þær fegra lífið með litum. 
 
Þetta kom fram í þætti Sirrýjar, Lífsins list sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld, en þar ræddi hún við vel þroskaðar stelpur sem eru önnum kafnar við að lita. Spurningin sem lá þar í loftinu var hvort þær væru gengnar í barndóm, en nei, þær töldu svo ekki vera - og þá lá beinast við að spyrja hvað þær fá út úr því að lita í bók; jú, það kúplar mann burt úr hraða hversdagsleikans og bindur fólk saman í þægilegri og skapandi samverustund. Sumsé, einskonar íhugun í eftirsóknarverðri núvitund.
 
Þáttinn má sjá í heild sinni eða klippum á hringbraut.is.