Tillaga kjörnefndar að framboðslista Sjálfstæðisflokksins vegna borgarstjórnarkosninga í vor var samþykktur nánast samhljóða á fundi í Valhöll í gærkvöld og var þar staðfest að hvorki Áslaug Friðriksdóttir né Kjartan Magnússon, einir reynslumestu borgarfulltrúar flokksins fá inni á listanum.
Nokkur kurr er meeðal flokksmanna vegna þessa og takast þar á tvenn sjónarmið; vanvirðing við trausta flokksmenn og nauðsyn endurnýjunar á lista sem lengi hefur veerið í minnihluta.
Listinn er annars sá að Eyþór Arnalds er í efsta sætinu, Hildur Björnsdóttir í öðru sæti, Valgerður Sigurðardóttir í því þriðja og Egill Þór Jónsson í fjórða sæti.
Í næstu sætum á eftir koma Marta Guðjónsdóttir, Katrín Atladóttir, Örn Þórðarson, Björn Gíslason, Jórunn Pála Jónasdóttir og Alexander Witold Bogdanski.
Talið hafði verið að Alda Vilhjálmsdóttir yrði í tíunda sætinu en Alexander var þar í staðinn.
Í 11. til 15. sæti eru þau Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Ólafur Kr. Guðmundsson, Þórdís Pálsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir og Erla Ósk Ásgeirsdóttir.