Sá sorglegi atburður varð að Sólheimum í Grímsnesi í vikunni að listaverki eftir listamann sem þar býr var stolið þar sem það var til sýnis á árlegri menningarveislu Sólheima.
Í færslu á Facebook-síðu Sólheima kemur fram að menningarveislan var sett síðastliðinn laugardag, en þar er afrakstur listsköpunar vetrarins sýndur.
Meðal verka á sýningunni voru litskrúðug og einstök egg eftir hinn ástsæla doppumeistara Sólheima, Kristján Atla Sævarsson. Um er að ræða seríu fimm eggja sem eru í regnbogans litum og sannkölluð listasmíð.
Á miðvikudaginn varð það sorglega atvik að appelsínugula eggið í seríunni hvarf af sýningunni og hefur ekkert spurst til þess síðan.
„Vonandi ratar það heim. Listamaðurinn og aðstandendur sýningarinnar eru vonsviknir í ljósi atburðarins,“ segir í færslu Sólheima.
Þeim sem geta veitt upplýsingar um málið er bent á að hafa samband við skrifstofu Sólheima í síma 422-6000 eða í gegnum tölvupóst á netfangið: solheimar@solheimar.is.