Listasafn telst nú viðurkennt safn

Listasafnið á Akureyri telst nú viðurkennt safn.

Fyrir áramót ákvað mennta- og menningarmálaráðherra, með vísan til 1. mgr. 9. gr. safnalaga nr. 141/2011, að fenginni tillögu safnaráðs að Listasafnið á Akureyri fengi þann staðal að teljast viðurkennt safn.

Viðurkenndum söfnum ber að starfa í samræmi við ákvæði safnalaga og skilyrði reglugerðar um viðurkenningu safna. Safnaráð hefur lögum samkvæmt eftirlit með safnastarfsemi í landinu.

„Þessi ákvörðun er sérstakt fagnaðarefni fyrir Listasafnið sem eykur möguleika þess töluvert en leggur því einnig mikilvægar skyldur á herðar,“ segir Hlynur Hallsson safnstjóri.

Á döfinni eru að sögn Hlyns miklar breytingar á húsnæði Listasafnsins. Aðstaða fyrir gesti batnar til muna, safnið verður aðgengilegra fyrir hreyfihamlaða og nýir glæsilegir sýningarsalir verða opnaðir sem bjóða upp á mikla möguleika.

„Í framtíðinni verður boðið upp á fasta sýningu á verkum úr safneigninni sem hægt verður að ganga að sem vísri og gegna mun mikilvægu hlutverki í öllu fræðslustarfi Listasafnsins. Hafist verður handa við endurbætur á þessu ári en ráðgert er að opna nýtt og endurbætt safn á 25 ára afmælisári Listasafnsins, árið 2018,“ segir Hlynur.