Listafólk með mjög misjöfn laun

Liðlega fjórtánfaldur munur er á hæstlaunaðasta íslenska listamanninum og þeim sem ber minnst úr býtum ef marka má tekjublað Frjálsrar verslunar sem birtir tekjur 3,725 Íslendinga þessa dagana.

Rithöfundurinn Ragnar Jónasson ber höfuð og herðar yfir aðra listamenn hvað laun varðar eða sem nemur nærfellt hálfri þriðju milljón á mánuði en þá ber jafnframt að taka fram að milli þess sem hann skrifar vinsælar glæpabækur sinnir hann lögmennsku sem vitaskuld gefur vel í aðra hönd.

Sá listamaður sem helgar sig einvörðungu list sinni og ber mest úr býtum kollega sinna er Sigurjón B. Sigurðsson, Sjón, en hann var með 1,738 þúsund í mánaðartekjur í fyrra eða sem nemur 21 milljónum króna í árslaun. Næstur honum kemur Bragi Valdimar Skúlason tónlistarmaður með 1,649 þúsund í mánaðarlaun en hann starfar jafnframt músíkinni á auglýsingastofu og þáði laun á RÚV á síðasta ári. Þá vekur athygli að Megas er með 1,424 þúsund á mánuði og Einar Örn Benediktsson fyrrum sykurmoli er með 1,313 þúsund í mánaðartekjur.

Af þeim listamönnum sem eru með meira en milljón í tekjur á mánuði má nefna Baltasar Kormák leikstjóra, Jón Kalman Stefánsson rithöfund, Eggert Pétursson listmálara, Rúnar Frey Gíslason leikara og Sigurjón Kjartansson skemmtikraft og handritshöfund.

Laddi er með 946 þúsund á mánuði, Tinna Gunnlaugsdóttir með 906, Sveppi með 884, Sigga Beinteins með 813, Yrsa Sig með 781, Örn Árna með 777, Páll Óskar með 667, Hilmir Snær með 665 og Arnaldur Indriðason með 661 þúsund krónur á mánuði.

Af listamönnum sem bera minna úr býtum en sem nemur hálfri milljón á mánuði má nefna Hugleik Dagsson með 486, Helga Björns með 483, Ólaf Darra með 463 og tónlistarmennina Egil Ólafs með 384, Björgvin Halldórs með 384 og Björn Jörund með 322.

Bergþór Pálsson er undir 300 þúsundum á mánuði eins og Ingó veðurguð, Garðar Thor Cortes, Gissur Páll og söngvarinn Valdimar.

Hrafn Gunnlaugsson er undir 250 þúsundum króna eins og söngvararnir Geir Ólafs, Unnsteinn Máni, Mugison og Ragga Gröndal.

Jökull Júlíusson í Kaleo er með 180 þúsund á mánuði, eða svipað og Gunni Þórðar, en undir 140 þúsundum króna í mánaðartekjur, ef marka má tekjublaðið eru meðal annarra Gunnar Hansson leikari, Lay Low, Andrea Gylfa og Hilmar allsherjargoði ásamt Jóhanni Friðgeiri óperusöngvara sem rekur lestina með 132 þúsund krónur á mánuði.