Lionsklúbburinn hængur biðst afsökunar - „hörmuleg mistök áttu sér stað“

Lionsklúbburinn Hængur á Akureyri sendi frá sér yfirlýsingu vegna verðlaunapeninga sem voru gefnir á hinu árlega Hængsmóti, þar sem keppt var í Boccia. 

Hringbraut sagði frá því í gær að sé tekið mið af verðlaunapeningum á mótinu, þá hafi verið keppt í flokki hreyfihamlaðra og flokki „þroskaheftra.“ Í samtali við Hringbraut gagnrýndi Ólafur Þórðarson, Boccia þjálfari hjá Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík, þessa orðanotkun harðlega. „Því miður eru þeir merktir þannig. Ég hef bent þeim á þetta á mótum áður fyrr,“ segir Ólafur í samtali við Hringbraut. „Þetta er út í hött.“ 

Í yfirlýsingunni biðst lionsklúbburinn innilegrar afsökunar á þessum mistökum og munu þeir senda þeim keppendum sem fengu þessa verðlaunapeninga nýja í þeirra stað. Hér að neðan má sjá yfirlýsinguna í heild.

Þau hörmulegu mistök áttu sér stað að okkur Hængsmönnum yfirsást að vitlaust hafi verið grafið á peninga og bikara þar sem átti að standa Þroskahamlaðir en stendur Þroskaheftir. Í öllum gögnum mótsins hvort sem um er að ræða mótaskrá, keppnisblöðum eða öðru sem frá okkur fór vegna mótsins, var ætíð sett fram Þroskahamlaðir. Því hörmum við þessi mistök sárlega. Það er okkur mikið kappsmál að koma ætíð fram við keppendur okkar af virðingu og vinskap. Við höfum átt farsæl samskipti við keppendur og félög þeirra til 37. ára og vonumst til þess að eiga þau áfram. Verðlaunagripirnir sem um ræðir voru veittir á Hængsmótinu síðastliðna helgi og tökum við alla ábyrgð á þessu leiðinlega máli.  Við biðjum keppendur okkar innilega afsökunar á þessum mistökum og munum við senda nýja verðlaunagripi til hlutaðeigandi.

\"\"