Linkind gagnvart börnum er vandi

Ef barn vill ekki mæta í skólann sinn að morgni er ef til vill ekki hægt að gera því meiri ógreiða en að leyfa því að fara sínu fram og sitja heima. Þetta sagði Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur og formaður Barnaheilla í sjónvarpsþættinum Kvikunni á Hringbraut á mánudagskvöld.

Kvíði var m.a. til umræðu í þættinum, sem sjá má hér á vef stöðvarinnar - og sá aukni vandi að skólabörn segjast ekki treysta sér í skólann að morgni dags og sitja jafnvel í einangrun heima. Mörg þannig tilvik eru út um allt land þessa dagana og víst að skammdegið hjálpar ekki til.

Kolbrún sagði að ef börn kviðu því að fara í skólann væri varla hægt að finna verra úrræði en að þau yrðu ein eftir heima. Hún taldi meðvirkni með börnum og tímaskort foreldra geta skýrt að börn réðu of miklu um eigin ferðir. Börnin yrðu að læra að taka ábyrgð.  Vond skilaboð um mikilvægi menntunar væru einnig fólgin í því ef látið væri undan kenjum barna án rökstuddrar ástæðu þegar foreldrar hringdu inn veikindi barna fyrir litlar sakir. Hennar regla væri sú að ef borið væri við slappleika ætti skólabarn að fara í skólann ef það mældist ekki með hita. Vandi barna með alvarlegar geðraskanir væri annað mál og krefðist sérúrræða.

Kvíði skólabarna hefur verið mjög til umræðu undanfarið. Ummæli fræðslustjórans á Akureyri um dagsektir vöktu mikla athygli. Kolbrún telur langt í land áður en til greina komi að beita foreldra barna sem mæta ekki í skólann án góðrar ástæðu dagsektum. Hún tekur þó undir með fræðslustjóranum, Soffíu Vagnsdóttur, í því að mikilvægt sé að ýta börnum af stað að morgni dags, annað geti verið ávísun á frekari einmanaleika barnanna og enn meiri vanda.