\"Ég held það sé nokkuð ljóst að Linda muni bjóða sig fram til forseta, hún yrði allt öðruvísi frambjóðandi en aðrir sem stigið hafa fram, vilja Íslendingar ekki ópólitískan fulltrúa sem að auki hefur mikla reynslu af því að koma fram á alþjóðavettvangi?\"
Þetta segir heimildarmaður Hringbrautar sem tengist Lindu Pétursdóttur, fyrrum alheimsfegurðardrottningu og fyrrum eiganda Baðhússins nokkuð náið eftir því sem Hringbraut kemst næst en kýs nafnleynd að svo stöddu.
Í viðtali við mbl.is í gær staðfesti Linda að hún væri alvarlega að hugleiða forsetaframboð. Hún segist hafa fundið fyrir miklum stuðningi og hvatningu.
Framboðsfrestur rennur út 21. maí nk en 13 hafa boðað framboð og líkur á 4-5 til viðbótar.
Hringbraut sagði fyrst fjölmiðla frá því að Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari væri að skoða málið alvarlega og þá ganga margir með Andra Snæ Magnason rithöfund í maganum sem kandídat til Bessastaða.