Linda: „Ég heyrði einfaldlega af niðurstöðunni frá blaðakonu“

Fyrrverandi sambýlismaður Lindu Gunnarsdóttur var fyrr í mánuðinum sakfelldur vegna ofbeldis sem hann beitti hana.

Linda fagnar dóminum þó hún hafi viljað sjá þyngri dóm en segir alla vinnslu málsins hafa verið litaða af vanhæfni og mistökum, bæði hjá lögreglu og ákærusviði.

Linda var í viðtali í helgarblaði Fréttablaðsins.

Fyrrverandi sambýlismaður Lindu hafði fengið töluvert pláss í fjölmiðlum en hann var í sjónvarpsþáttum og var mikið til umfjöllunar vegna þeirra um tíma.

Kæru Lindu var upphaflega vísað frá á þeim grundvelli að um orð gegn orð væri að ræða, þrátt fyrir að áverkavottorð sýndi átta áverka og árásin væri flokkuð sem alvarleg.

Hún sagði sögu sína í viðtali við helgarblað Fréttablaðsins síðasta vor og nokkrum dögum síðar var henni tjáð að málið yrði tekið upp að nýju.

Fyrr í mánuðinum var maðurinn svo sakfelldur en hann hlaut þriggja mánaða dóm, skilorðsbundin til tveggja mánaða.

Dómur féll þann 17. ágúst síðastliðinn og viku síðar höfðu hvorki Linda né lögfræðingur hennar fengið að sjá hann þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir.

„Ég heyrði einfaldlega af niðurstöðunni frá blaðakonu Fréttablaðsins,“ segir Linda, en daginn eftir þetta viðtal, þann 24. ágúst birtist dómurinn á vefnum og kom þá Lindu fyrst fyrir sjónir.

Hægt er að lesa viðtalið við Lindu í heild sinni hér.