Linda Blöndal hefur gengið til liðs við Hringbraut en hún mun sinna dagskrárgerð í sjónvarpi í samstarfi við Sigurjón M. Egilsson og Sigmund Erni Rúnarsson. Linda starfaði lengi hjá Ríkisútvarpinu við dagskrárgerð og fréttamennskuÞá starfaði hún sem fréttamaður á Stöð 2, þar til hún fór í mastersnám í nýsköpunarfræðum.
,,Það er mikill fengur í því að fá jafn öfluga konu og Lindu til okkar því sjaldan ef nokkurn tíma hefur þörfin á innlendri umræðu verið jafn mikilvæg. Lindu mun bera víða við í dagskrárgerð sjónvarps Hringbrautar en þar erum við að stórauka við fjölda innlendra þátta í hverri viku,” segir Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri Hringbrautar.
Með aukinni innlendri dagskrá í sjónvarpi, hefur vefsíðunni hringbraut.is verið breytt í kynningarsíðu fyrir ljósvakamiðla og starf fréttastjórans, Björns Þorlákssonar, verið lagt niður. Björn mun sinna sérverkefnum fyrir sjónvarpið í sumar en í vetur sem leið, stýrði hann fréttaskýringarþættinum Kvikunni sem sýndur var á Hringbraut.
Næstkomandi þriðjudag hefst ný dagskrá hjá Hringbraut en hún felur það í sér að á milli kl.20-21 á virkum dögum, eru mannlífsþættir undir stjórn Sigmundar Ernis Rúnarssonar. Fastir liðir í þeirri dagskrá eru til dæmis Mannamál, Fólk með Sirrý og fleira en margir nýir liðir munu bætast við. Má þar nefna dagskrá um frístundir, ferðalög, mat og heilsu. Þá verða frumsýningar á nokkrum þáttum færðar fram á helgar eins og Lóa og lífið og Bankað uppá með Sirrý. Nýir helgarþættir líta dagsins ljós, meðal annars Kokkasögur í umsjá Gissurs Guðmundssonar, fyrrum forseta alheimsamtaka matreiðslumanna.