Límtré-vírnet framleiðir yleiningar auk límtrés

Þátturinn Atvinnulífið hefst að nýju í kvöld kl. 20.30 eftir sumarleyfi en síðast var þátturinn á dagskrá Hringbrautar hinn 6. júní s.l.  Í þessum þætti verður fjallað um starfsemi fyrirtækisins Límtré-Vírnets sem á sér sögu síðan 1956 þegar fyrirtækið var upphaflega stofnað.  Límtrésverksmiðja fyrirtækisins á Flúðum er heimsótt og þar fá áhorfendur að sjá nákvæmlega hvernig límtré er unnið og sett saman.  Þar að auki mun forstöðumaður framleiðsludeildar sýna okkur nýja yleiningaverksmiðju sem tekin var í notkun árið 2016 en hún er um margt mjög merkileg.  Framleiddar eru einingar úr steinull sem klæddar eru með stáli beggja megin sem búið er að  valsa eða munstra eftir hag viðskiptavinarins.  Einnig mun framkvæmdastjórinn Stefán Logi Haraldsson koma inná samstarf við Vegagerðina um lausnir við hönnun og smíði brúargólfa í tengslum við breikkun einbreiðra brúa víða um landið.  Umsjónarmaður er Sigurður K. Kolbeinsson en kvikmyndatöku annaðist Friðþjófur Helgason.