Í tvígang þurfti að kalla til lögreglu að heimili Lilju Katrínar Gunnarsdóttur ritstjóra DV um helgina. Þá hafði heimili hennar verið grýtt með eggjum en þekktir tónlistarmenn og samfélagsmiðlastjörnur höfðu þá skorað á sína aðdáendur að fara að heimili hennar.
Ástæðan fyrir því að listamennirnir hafa hvatt fylgjendur sína til að mæta við hús ritstjórarns er vegna greinar sem birtist í síðasta tölublaði DV þar sem myndir af húsum þekktra tónlistarmanna á Íslandi voru birtar ásamt upplýsingum um húsaleigu, fasteignamat og stærð. Lilja Katrín skrifaði sjálf greinina og hefur hún verið gagnrýnd á samfélagsmiðlum vegna hennar. Aron Moli hefur meðal annars hvatt fólk til þess að sniðganga DV vegna málsins.
Í Fréttablaðinu kemur fram að varðstjóri hjá lögreglunni í Kópavogi hafi staðfest að borist hafi tilkynning um hávaða og eggjakast e enginn hefur verið handtekinn. Þá hefur Lilja Katrín ekki viljað tjá sig um málið.
Lilju Katrínu hafa einnig borist fjölmargar hótanir á samfélagsmiðlum.