Lilja vill rúv af aug­lýsinga­markaði

Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra, segist fylgjandi því að Ríkisútvarpið fari af auglýsingamarkaði. Hún segist ætla að kanna hvort sé pólítískur stuðningur fyrir því innan ríkisstjórnarinnar til hlítar nú á haustmánuðum. Lilja er í ítarlegu viðtali í nýjasta hefti Þjóðmála sem kom út í dag þar sem hún ræðir meðal annars umdeilt fjölmiðlafrumvarp sitt, sem gerir einkareknum miðlum kleift að sækja styrki í formi endurgreiðslu á allt að 25 prósentum við rekstur ritstjórnar á ári. 50 milljóna króna þak verður sett á hámarksfjárhæð styrkja til fjölmiðlanna. Hún segir aðgerðina sambærilega því sem er að gerast á Norðurlöndum.

Þetta er aðeins brot úr frétt Fréttablaðsins. Fréttina í heild sinni má lesa hér.

„Við sjáum líka að þar er danska ríkisútvarpið ekki á auglýsingamarkaði. Ég hef stutt þá stefnu og lagt til að Ríkisútvarpið verði tekið af auglýsingamarkaði en það hefur ekki verið pólítískur stuðningur við það fram til þessa. Ég ætla hins vegar að kanna það til hlítar í haust. Það er þó ljóst að við förum ekki þá leið nema gætt verði að tekjum Ríkisútvarpsins og mismunurinn brúaður,“ segir Lilja við Þjóðmál.

Þetta er aðeins brot úr frétt Fréttablaðsins. Fréttina í heild sinni má lesa hér.