Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálráðherra, vill að íslensk ungmenni geti alist upp við að Laddi tali fyrir Andann í Alladín, ekki aðeins Robin Williams. Í grein sem hún skrifar í Morgunblaðiðí dag segir Lilja að hún hafi sent bréf til forstjóra Disney þar sem hún hvatti kvikmyndarisann til að gera íslenska talsetningu aðgengilega á Disney+ steymisveitunni hér á landi.
„Okkar frábæra fagfólk, bæði tækni- og listamenn, hefur skilað vinnu á heimsmælikvarða frá því fyrsta Disney-myndin í fullri lengd var hljóðsett árið 1993. Felix í hlutverki Aladdíns, Laddi í hlutverki andans og Edda Heiðrún sem prinsessan Jasmín eru ógleymanleg og gáfu tóninn fyrir það sem skyldi koma,“ segir Lilja.
„Í vikunni sendi ég forstjóra Disney bréf og hvatti fyrirtækið til að nota það frábæra efni sem þegar er til. Það er bæði sanngjörn og eðlileg krafa, enda er fátt þjóðinni kærara en íslenskan, og það er skylda stjórnvalda að styðja við og efla þennan hluta fjölmiðlunar. Raunar hvílir sú lagaskylda á íslenskum sjónvarpsstöðvum að texta erlent efni, en lögin ná ekki yfir streymisveiturnar sem falla milli skips og bryggju.“