Öll spjót standa á Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins þessi dægrin - og hver fyrrverandi formaður flokksins af öðrum fer þess nú á leit við hann að hann stígi til hliðar.
En hver verða örlög Sigmundar Davíðs á formannsstólnum? Hver verða örlög hans í flokknum? Getur hann klofnað? Er von á sérframboði í kjördæminu nyrðra? Og hver tekur við? Eru jafnvel meiri líkur á að það verði Lilja Alfreðsdóttir en Sigurður Ingi Jóhannsson sem ekki treystir sér lengur til að starfa með óbreyttri flokksforystu. Það þykir ekki ósennilegt, enda gætu bæði Sigmundur Davíð og Sigurður Ingi sæst á hana ef hvorugur þeirra fær brautargengi til æðstu metorða í flokknum.
Fordæmalausar aðstæður innan elsta starfandi stjórnmálaflokks landsins verða ræddar í þaula í Ritstjóraþætti kvöldsins en þar gefa álit sitt Fanney Birna Jónsdóttir, fyrverandi aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins og Reynir Traustason, fyrrverandi ritstjóri DV og stofnandi Stundarinnar, en meðal annarra umræðuefna er karlaveldið í Sjálfstæðisflokknum og Vigdísarskýrslan sem þykir skrifa nýjan kafla í sögu nefndastarfs innaan Alþingis.
Ritstjórarnir hefjast klukkan 21:30 í kvöld.
u