Lilja skorar á björgólf að greiða viðskiptavinum landsbankans miskabætur

„Hér kemur áskorun til Björgólfs Thors Björgólfssonar frá viðskiptavini Landsbanka Íslands til fj[öru]tíu ára. Ég skora hér með á auðmanninn Björgólf Thor Björgólfsson að nota hluta af auði sínum (276 milljarðar) til að greiða viðskiptavinum Landsbankans „miskabætur“ vegna hruns bankans árið 2008! Margir skuldsettir viðskiptavinir bankans urðu fyrir ómældu tjóni vegna ásetnings eða stórfell[d]s gáleysis stjórnenda bankans sem enn hefur ekki verið bætt.“

Þetta skrifar Lilja Mósesdóttir, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, á Facebook-síðu sína í gær. Vísar hún til fréttaflutnings af því að Björgólfur Thor sé nú meðal 100 ríkustu manna Bretlands og að auðæfi hans nemi 276 milljörðum króna, samkvæmt lista The Sunday Times.

Í umfjöllun Mannlífs um málið er farið yfir breytta stöðu Björgólf Thors frá því eftir hrun íslensku bankanna á haustdögum ársins 2008. Þar segir að við fall Landsbankans hafi Björgólfur Thor og félög tengd honum verið stærstu skuldarar bankans.

Við hrun bankanna var Björgólfur Guðmundsson, faðir Björgólfs Thors og stjórnarformaður Landsbankans, þriðji stærsti skuldari bankans. Samtals námu skuldbindingar feðganna við bankann vel yfir 200 milljörðum króna, sem var meira en sem nam eigin fé Landsbankasamstæðunnar.