Lilja rannveig er nýr formaður suf

Lilja Rann­veig Sig­ur­geirs­dótt­ir var kjör­in formaður Sam­bands ungra fram­sókn­ar­manna (SUF) á Sam­bandsþingi sem fór fram um helg­ina í Hriflu, hátíðarsal Há­skól­ans á Bif­röst. Lilja hlaut rúmlega 82,1 prósent greiddra at­kvæða.

Lilja er 22 ára og er varaþingmaður í Norðvest­ur­kjör­dæmi. Hún vinnur í  Grunn­skóla Borg­ar­fjarðar og hefur í haust fjar­nám í grunn­skóla­kenn­ara­fræðum.

Lilja er búsett Borg­ar­byggð með manni sínum og 8 mánaða syni þeirra.