Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, minnist föður síns, Alfreðs Þorsteinssonar, sem lést þann 28. maí síðastliðinn. Alfreð var aðeins 76 ára að aldri þegar hann lést en hann hafði glímt við veikindi fyrir andlát sitt.
Alfreð verður jarðsunginn í dag frá Fossvogskirkju klukkan 15:00.
„Samskiptin við pabba einkenndust af mikilli hlýju, virðingu og gleði. Við gerðum allt með honum. Veiðiferðir um allt land hófust upp úr fjögurra ára aldrinum, bíóferðir, fótboltaleikir, fundarsetur, utanlandsferðir og bíltúrar,“ skrifar Lilja um föður sinn á Facebook.
„Eftirlætis árstími pabba er genginn í garð, þar sem bleikjan og urriðinn ganga upp Brúará í Biskupstungum og fótboltavellir iða af lífi og framtíðardraumum. Kraftaverk náttúrunnar birtast okkur, gróðurinn hefur tekið við sér og sól er hátt á lofti.“
Frammari í húð og hár
Alfreð var heiðursfélagi í Fram en hann æfði hjá félaginu frá blautu barnsbeini. „Ungur hóf hann að þjálfa og hundruð pilta kunna af honum skemmtilegar sögur af Framvellinum. Þá sá þjálfarinn um öll mál liðsins, mætti með æfinga- og keppnisbúnað og nesti handa liðinu.“
„Pabbi var mjög stoltur af ferli sínum hjá Fram og enn í dag hittum við fólk sem minnist hans sem frábærs þjálfara og fyrirmyndar. Það þykir okkur afar vænt um.“
Faðir Lilju var einnig mikill framsóknarmaður og var um tíma borgarfulltrúi flokksins í Reykjavík. „Fram var raunar svo stór partur af lífi okkar, að lengi héldum við að Framsóknarflokkurinn væri stjórnmálaarmur Fram – þar til við uppgötvuðum að einkennislitirnir pössuðu ekki saman.“
Yndislegur afi
Systurnar Lilja og Linda Rós Alfreðsdætur sammælast um að faðir þeirra hafi verið þeim mikið hvatning í lífinu. „Hann stóð með okkur, hvatti okkur til að sækja menntun um allan heim og lagði áherslu á að við sæktum á þau mið sem við hefðum ástríðu fyrir. Þá væri gleðin við völd. Pabbi hafði unun af lestri góðra bóka, sérstaklega af sagnfræðilegum toga. Honum fannst sjálfsagt að við þekktum helstu bókmenntaverk sögunnar fyrir 10 ára aldur, enda kæmi viska og geta frá lestri. Þessi áhugi á sögu og menningu var endalaus uppspretta af samræðum sem gáfu svo mikið. Þessar samræður varpa sólargeisla langt inn í framtíðina og verma. Pabbi var líka yndislegur afi, vakinn og sofinn yfir þroska barnabarnanna. Hann hafði unun af því að sjá þau vaxa og dafna, hafði sjálfur mikið að gefa og vildi deila með öðrum.“
Kraftaverkin misstór
Alfreð var giftur Guðnýju Kristjánsdóttur. „Foreldrar okkar eyddu nánast allri ævinni saman og hefðu átt gullbrúðkaupsafmæli 18. júlí næstkomandi. Allt vildu þau gera fyrir okkur systur, með okkar velferð ávallt að leiðarljósi. Móðir okkar hefur alla tíð verið mikill dugnaðarforkur og í erfiðum veikindum pabba síðustu árin var hún hans stoð og stytta. Hafðu miklar þakkir elsku mamma og mikið var pabbi þér þakklátur.“
„Kraftaverkin í lífinu eru mörg og misstór og stundum eru þau unnin af einstaklingum sem lyfta björgum, að manni finnst, við aðstæður sem virðast óyfirstíganlegar. Það einkenndi líf pabba. Viljastyrkur og þrautseigja fleytti honum yfir mörg sker og skilaði honum heilum í höfn.“