Lilja kynnti fjölmiðlafrumvarpið

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menn­ing­armálaráðherra, kynnti nú rétt fyrir hádegi frumvarp um opinberan fjárstuðning við öflun og miðlun frétta og fréttatengds efnis einkarekinna fjölmiðla.

Í frumvarpinu kemur fram að stuðningur ríkisins við einkarekna fjölmiðla verði um 300-400 milljónir króna og að hámarki 50 milljónir króna á ári til hvers fjölmiðils, að endurgreiðsla af hluta ritstjórnarkostnaðar verði að hámarki 25 prósent og að stuðningurinn sé háður ýmsum skilyrðum. DV.is greinir frá.

Skilyrðin sem um ræðir eru eftirfarandi:

  • Aðalmarkmið fjölmiðils skal vera miðlun frétta, fréttatengds efnis og umfjöllun um samfélagsleg málefni.
  • Fjölmiðill skal hafa veitt fullnægjandi upplýsingar um eignarhald og yfirráð. 
  • Efni fjölmiðilsins skal vera fjölbreytt og fyrir allan almenning á Íslandi.
  • Prentmiðlar skulu koma út að lágmarki 48 sinnum á ári. Netmiðlar, hljóð- og myndmiðlar og aðrir sambærilegir miðlar skulu miðla nýju efni daglega.
  • Ritstjórnarefni skal að lágmarki vera 40 prósent af því efni sem birtist í prentmiðlum sem dreift er endurgjaldslaust. Ritstjórnarefni í öðrum prentmiðlum og netmiðlum skal að lágmarki vera helmingur af birtu efni.
  • 1/6 hluti ritstjórnarefnis skal byggja á sjálfstæðri frétta- eða heimildaöflun.
  • Starfsmenn í fullu starfi skulu vera að lágmarki þrír (eða einn hjá staðbundnum miðlum). 
  • Fjölmiðill hafi starfað óslitið í tólf mánuði eða lengur fyrir þann tíma er umsókn um endurgreiðslu berst til fjölmiðlanefndar.
  • Fjölmiðill sé ekki í vanskilum við opinbera aðila eða lífeyrissjóði.

Mbl.is greinir frá því að áður hafi Lilja kynnt hug­mynd­ir rík­is­stjórn­ar­inn­ar um að horfa til þess að Rík­is­út­varpið myndi draga úr þátt­töku sinni á aug­lýs­inga­markaði, sem nem­ur um 560 millj­ón­um króna á ári. DV greinir frá því að einnig hafi áður verið horft til þess að lækka virðis­auka­skatt á ra­f­ræn­ar fjölmiðlaáskrift­ir úr 24 prósent í 11 prósent og sam­ræma skattlagningu á aug­lýs­ing­um með það að markmiði að ís­lensk­ir fjöl­miðlar stæðu jafn­fæt­is er­lend­um net­miðlum. Í frumvarpsdrögunum er hvergi minnst á þetta þrennt.