Gestir Ritstjóranna á Hringbraut í vikunni voru þau Lilja Katrín Gunnarsdóttir sem nýverið var ráðin ritstjóri DV og Ingimar Karl Helgason. Í þættinum er rætt það sem er efst á baugi hverju sinni. Að þessu sinni kom þriðji orkupakkinn og Miðflokkurinn til tals. Sigmundur Ernir benti á að í síðustu tveimur þáttum hefði verið rætt að Miðflokkurinn stæði fyrir mótmælum og svo málþófi eingöngu til að græða á því. Sigmundur Ernis sagði:
„Ég held að hann teikni sig upp sem helsta málsvara ákveðins hóps í samfélaginu og skilji Framsóknarflokkinn svolítið eftir.“
Lilja Katrín samsinnti þessu og svaraði: „Alltaf þegar ég heyri þennan rökstuðning, það sé verið að vernda hagsmuni mína og þeir séu svo ofboðslega uppteknir af því að ég sem þjóðfélagsþegn þurfi nú ekki að ganga frá þessu máli með minn hlut skertan, þá kaupi ég ekki orð af því.“
Þá sagði Lilja Katrín að Miðflokkurinn væri algjörlega sér á báti.
„ ... hvenær í ósköpunum hefur honum verið ant um mig eða mína tilveru eða minn rétt í framtíðinni eða hvað ég fæ mikið af auðlindum þjóðarinnar?“ spurði Lilja Katrín og bætti við: „Ég þoli ekki þegar það er talað svona við mig. Það er bara verið að ljúga að mér. Þeim er alveg sama og ég veit það,“ sagði Lilja Katrín og vitnaði svo í upptökurnar af Klaustri.
„Ég heyrði alveg hvernig þú talaðir á þessum bar, svo ekki fara að gefa mér þessi rök núna.“
Þá sagði Lilja Katrín að lokum:
„Gott og vel ef þetta er eitthvað rosa ástríðumál og allt í góðu með það en ekki reyna að selja þetta með svona lýgi. Ég þoli það ekki.“