Lilja katrín ráðin ritstjóri dv

Lilja Katrín Gunnarsdóttir hefur verið ráðin ritstjóri Frjálsrar fjölmiðlunar ehf., sem meðal annars á og rekur DV og DV.is. Lilja er annar tveggja ritstjóra sem ráðnir verða til félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá DV.

Þar segir að Lilja Katrín hafi starfað í fjölmiðlum síðustu fimmtán árin. Hún hóf ferilinn á Fréttablaðinu og hefur meðal annars verið ritstjóri Séð og Heyrt, umsjónarmaður innblaðs Fréttablaðsins og Lífsins á Vísi og vefstjóri Mannlífs. Einnig hefur hún unnið sem dagskrárgerðarkona í Íslandi í dag og starfað sem kynningarstjóri framleiðslufyrirtækisins Sagafilm. Hún er með BA gráðu í leiklist fyrir sjónvarp og kvikmyndir og hefur leikið í sjónvarpi, talsett auglýsingar, skrifað handrit að gamanþáttum og samið einleik.

Lilja mun vinna náið með Guðmundi Ragnari Einarssyni, markaðs- og þróunarstjóra DV, að þróun DV og undirmiðla. Einar Þór Sigurðsson verður áfram aðstoðarritstjóri Frjálsrar fjölmiðlunar ehf.