Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir í samtali við RÚV að hún útiloki ekki að hin umdeilda fjölmiðlanefnd verði lögð niður. Lilja segir:
„Eins og þið þekkið þá hafa verið miklar breytingar á fjölmiðlamarkaðinum og við höfum verið að vinna að frumvarpi til að styðja betur við einkarekna fjölmiðla þannig í anda þess vil ég líka endurskoða fjölmiðlalögin og þar er auðvitað fjölmiðlanefnd undir.“
Áður hefur verið greint frá því að nýskipuð fjölmiðlanefnd er ekki fullskipuð samkvæmt lögum. Ástæðan fyrir því er að Blaðamannafélag Íslands neitar að tilnefna sinn fulltrúa en félagið dró sinn fulltrúa til baka í mars. Er það gert í mótmælaskyni við hlutverk og tilurð fjölmiðlanefndar.
Eins og staðan er núna eru þrír lögmenn og einn heimspekiprófessor í nefndinni. Lögin segja að þeir verði að vera fimm. Helsta gagnrýnin er að þessir fjórir nefndarmenn hafi ekki sérþekkingu á fjölmiðlum enda hafa þeir ekki starfað í faginu. Þegar Lilja var spurð hvort skipanin stæðist lög, svaraði hún:
„Ég hef fengið þær ráðleggingar að við þurfum auðvitað að byrja á því að gera þetta sem við þurfum að gera, ég hef verið að hvetja Blaðamannafélag Íslands til að taka þátt í nefndinni og þetta er allt núna til skoðunar.“