Lilja: „ég hefði kosið fullt gagn­­sæi í ráðning­ar­­ferl­inu öllu“

Lilja Al­freðs­dóttir, mennta-og menningar­mála­ráð­herra, segir í samtali við Morgunblaðið að hún hefði viljað fullt gagnsæi í ferlinu við ráðningu út­varps­stjóra. Í skriflegu svari til Morgunblaðsins tekur hún fram að það sé stjórn RÚV sem stýri ráðningarferlinu en ekki hún. Við ráðningu á nýjum útvarpsstjóra var haldið leyndu hverjir sóttu um stöðuna og þá neitaði stjórn RÚV að rökstyðja val sitt á Stefáni Eiríkssyni.

Bæði Kolbrún Halldórsdóttir og svo Kristín Þorsteinsdóttir sem sóttu um stöðuna eru ósáttar og hafa óskað eftir upplýsingum um ráðningarferlið. Kolbrún íhugar að kæra ráðningu á Stefáni Eiríkssyni í stöðuna, til kærunefndar jafnréttismála. Lilja segir í skriflegu svari til RÚV.

„Ráðning í stöðu út­­varps­­stjóra ligg­ur al­farið á borði stjórn­ar RÚV sem er kos­in af Al­þingi Ís­lend­inga. Það hef­ur þegar komið fram í þessu máli að ég hefði kosið fullt gagn­­sæi í ráðning­ar­­ferl­inu öllu og það á líka við um á­kvörðun stjórn­ar að rök­­styðja ekki.“