Lilja Dögg segir þetta gríðarlega miklilvægt: „Ómet­an­legt fyr­ir börn“

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, segir mikilvægi lesturs og lesskilnings ótvírætt í nýjum pistli í Morgunblaðinu í morgun.

„Við höf­um lagt á það ríka áherslu síðustu ár að bæta læsi, ekki síst hjá börn­un­um okk­ar. Orðaforði og lesskiln­ing­ur eykst með aukn­um lestri og því er ómet­an­legt fyr­ir börn að lesa, taka glós­ur og spyrja út í orð sem þau þekkja ekki. Orðaforði barna skipt­ir miklu máli fyr­ir vellíðan og ár­ang­ur í skóla og býr þau und­ir virka þátt­töku í sam­fé­lag­inu. Með auk­inni mennt­un eykst sam­keppn­is­hæfni þjóðar­inn­ar og geta henn­ar til að standa und­ir eig­in vel­ferð,“ segir Lilja Dögg.

Lilja Dögg segir að í tilefni af þátttöku íslensku stelpnanna í Evrópumóti kvenna í knattspyrnu sem fer fram í Bretlandi skipuleggi menningar- og viðskiptaráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið lestrarhvatningarherferðina, Tími til að lesa, sem ætluð er fyr­ir les­end­ur á grunn­skóla­aldri í sum­ar.

Nán­ari upp­lýs­ing­ar er að finna á vefsíðunni www.tim­itila­dlesa.is en að sögn Lilju Daggar á hvatningin að vera skemmtileg og innblásin af þátttöku stelpnanna á EM í sumar.

„Að þessu sinni snýst lestr­ar­hvatn­ing­in um bæði lest­ur og sköp­un. Börn og for­eldr­ar gera með sér samn­ing um ákveðinn mín­útu­fjölda í lestri fyr­ir hvern leik og hvert mark sem stelp­urn­ar okk­ar skora á EM.“

Lilja Dögg segir það vera staðreynd að ef barn les ekkert yfir sumartímann getur orðið allt að þriggja mánaða afturför á lestrarfærni þess í sumarfríinu.

Hægt er að lesa pistil Lilju Daggar í heild sinni hér.