Lilja Dögg minnist Prins Póló: „Það er sárt að sjá á eftir Svavari kveðja í blóma lífsins“

Lilja Dögg Alfreðsdóttir Ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra birti í kvöld færslu þar sem hún minnist tónlistarmannsins Svavars Péturs Eysteinssonar eða Prins Póló eins og svo margir þekktu hann en hann lést úr krabbameini í dag.

Lilja ásamt svo mörgum öðrum dáðist að þessum alþýðulistamanni sem skilur eftir sig ríkulegan menningararf og kvaddi okkur í blóma lífsins.

Í færslu Lilju telur hún upp þau fjöldamörgu hlutverk sem Svavar gegndi í gegnum tíðina en hann var tónlistarmaður, frumkvöðull á sviði matvælaframleiðslu, bóndi, grafískur hönnuður og listamaður.

Þá hafi hún dáðst að því hversu opinskár Svavar var með veikindi sín undanfarin ár en Svavar skoraðist aldrei undan því að ræða þau. Eins og Lilja segir hafi hann „þrátt fyrir allt saman haldið áfram að sinna listinni, koma fram, og vera okkur öllum innblástur til góðra verka.

Hægt er að sjá færslu Lilju í heild sinni hér fyrir neðan: