Ákvörðun Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra að höfða mál gegn Hafdísi Helgu Ólafsdóttur hefur kostað ríkið rúmar 13 milljónir króna. Forsaga málsins er löng, Hafdís Helga sótti um starf ráðuneytisstjóra. Páll Magnússon, flokksmaður Lilju, var ráðinn í embættið. Hafdís kærði það til jafnréttisráðs og vann, Lilja stefndi henni svo persónulega fyrir héraðsdóm þar sem Hafdís hafði betur, málið er nú á leið fyrir Landsrétt.
Dómsmálið fyrir héraðsdómi kostaði 8,7 milljónir króna, þar af voru 4,5 milljónir króna vegna málsvarnarlauna lögmanns Hafdísar Helgu. Áætlaður kostnaður fyrir Landsréttarmálið er allt að 1,2 milljóna króna. Á undan hafði á hálf fimmta milljón farið í kostnað vegna starfa hæfisnefndar.
Þorbjörg Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir á Twitter:
„Íslenska ríkið gegn konu. Kostnaður 10 milljónir. Konan hefur ekki gert annað en að fá tvisvar staðfest að á henni voru brotin lög.“
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hafði bara eitt að segja: „Skandall.“