Ráðgjafanefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur lagt til að gefinn verði út tímabundinn innflutningskvóti á lækkuðum tollum til að hægt sé að bregðast við skorti á íslenskum lambahryggjum og hryggjarsneiðum. Lagt er til að flytja megi þessar vörur inn með magntolli frá 29. júlí til 30. ágúst.
Það þarf kannski ekki að koma á óvart að Framsóknarflokkurinn sé ekki sáttur við þetta. Morgunblaðið hefur eftir Lilju Alfreðsdóttur, varaformanni flokksins og ráðherra, að engin þörf sé á að flytja inn lambakjöt. Hún hafi heimildir fyrir að margir sláturleyfishafar séu enn að afgreiða lambahryggi til verslana og auk þess hefjist slátrun um miðjan ágúst.
„Við eigum eftir að ræða þessi mál frekar innan ríkisstjórnarinnar, en aðalatriðið er að það er ekki þörf fyrir þennan innflutning.“
Er haft eftir Lilju sem segir Framsóknarflokkinn vilja halda uppi sérstöðu íslenska lambakjötsins enda væri um mjög metnaðarfulla framleiðslu og einstaka afurð að ræða. Hún segir einnig að fram að þessu hafi ríkt samstaða á milli íslenskra neytenda og bænda um að halda í sérstöðu íslenska lambakjötsins, bæði fyrir landsmenn og ferðaþjónustuna.
„Ferðamenn koma hingað til þess að borða íslenskar afurðir og við eigum að gera allt sem við getum til þess að tryggja að svo geti orðið.“