Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra, ætlar sér að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði. Fréttablaðið greinir frá þessu í dag. Hugmyndir Lilju hafa ekki formlega verið ræddar innan ríkisstjórnarinnar. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, er sögð vera opin fyrir hugmyndinni, en vill þá auka fjárframlög til Ríkisútvarpsins til að bæta upp tekjutapið sem verður vegna aðgerðanna.
„Fyrirkomulagið er þannig víða í kringum okkur, en það á sér þar töluvert langa sögu. Það sem ég myndi vilja leggja til er að það yrði skoðað sérstaklega hvaða áhrif það myndi hafa á íslenska auglýsingamarkaðinn, það er að segja, hvort þeir rúmir tveir milljarðar sem Ríkisútvarpið hefur í tekjur af auglýsingasölu muni skiptast yfir á hina innlendu miðlana eða hvort þeir fari annað, til dæmis úr landi. Ég myndi vilja gera það með því að hækka útvarpsgjaldið. Mér hugnast ekki að almannafjölmiðlill sé á fjárlögum,“ segir Katrín Jakobsdóttir í samtali við Fréttablaðið.