Kristjana Hákonía Hlynsdóttir hefur hrundið af stað söfnun á vefsíðu Gofundme fyrir Fjölskylduhjálp Íslands. Fjölskylduhjálp Íslands mun verða lokuð í júlí og ágúst í sumar. Þetta er í fyrsta skipti í sögu samtakanna sem gripið er til sumarlokunar. Frá þessu er greint í DV sem kom út í dag.
Þar er einnig rætt við konu sem kölluð er Lilja en hún er öryrki og einstæð fjögurra barna móðir á höfuðborgarsvæðinu sem berst í bökkum. Hún hefur reitt sig á matargjafir Fjölskylduhjálparinnar undanfarna mánuði. Börnin eru á aldrinum sex til fimmtán ára. Þá greiðir Lilja 220 þúsund í húsaleigu á mánuði. Það segir sig sjálft að þá er ekki mikið eftir af bótunum til að kaupa mat og aðrar nauðsynjar fyrir fjölskylduna. Klárast peningurinn yfirleitt um miðjan mánuðinn og því hefur Fjölskylduhjálp Íslands skipt konuna miklu máli til að komast í gegnum fátæktina. Lilja segir:
„Ég veit ekkert hvert ég á að snúa mér annað. Þetta er rosalega erfitt. Það er bara allt svo dýrt í dag,“ segir Lilja sem tók tvö yngstu börnin úr leikskóla í síðasta mánuði. Það var ekki annað í boði. Hún bætir við:
„Ég er ofboðslega sár og svekkt að það skuli ekki vera hægt að hafa þetta opið.“