Líklegt að kjósa þurfi aftur

Þórunn Elísabet Bogadóttir ritstjóri Kjarnans spáir því að Íhaldsflokkurinn fái flest þingsæti í kosningunum í Bretlandi í dag.  Hún telur þó allt eins líklegt að ganga verði til kosninga aftur þar sem ólíklegt sé að nokkur flokkur fái meirithluta á þingi og lítil hefð sé fyrir samsteypustjórnum í Bretlandi. 


Þetta kom fram í Heimsljósi í gær þar sem þau feðgin Þórunn og Bogi Ágústsson fréttamaður spáðu í kosningabaráttuna og möguleg úrslit. Þórunn er menntuð í stjórnmálum frá Edinborgarháskóla og Bogi vitaskuld búinn að rýna í breskar kosningar oftar en tölu verður komið á.


Ljóst er að miklar sviptingar eru í breskum stjórnmálum og tími flokkanna tveggja, Íhaldsflokksins og Verkamannaflokksins, hefur runnið sitt skeið á enda.  Þar ber sérstaklega að nefna þá sérstöku stöðu sem komin er upp vegna framgangs Skoska þjóðarflokksins sem útlit er fyrir að fái mögulega öll þingsæti Skota í breska þinginu. Flokkurinn væri þar með kominn í óskastöðu þar sem hann virðist eini flokkurinn sem gæti mögulega myndað meirihlutastjórn með stóru flokkunum tveimur.  Bogi sagði hinsvegar erfitt að átta sig á hvort myndun samsteypustjórnar væri möguleg þar sem allir flokkar hefðu slegið um sig svokölluðum rauðum línum þar sem þeir útilokuðu í raun að vinna hver með öðrum út af prinsippástæðum.


Hægt er að skoða þáttinn í heild sinni undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is og klippur úr þættinum á forsíðu vefjarins.