Almannavarnir ríkisins mælast til þess að íbúar á Suðurlandi haldi sig heima við um og upp úr hádegi á morgun. Óveðrinu sem spáð er, megi líkja við versta ofsaveður sem gengið hafi yfir landið á síðustu árum.
Gangi spár Veðurstofunnar eftir verður fárviðri á öllu landinu annað kvöld, en spár af því tagi eru ekki algeng sjón. Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur, sýndi nánast lygilegar myndir af veðurspá morgundagsins í veðurfréttum RÚV í gærkvöld.
Í kvöldfréttum RÚV var einnig rætt við Rögnvald Ólafsson, verkefnastjóra hjá Almannavörnum. Hann sagði að samgöngur myndu væntanlega leggjast af á meðan mesti veðurofsinn gengi yfir.
Samhæfingarmiðstöðin verður virkjuð vegna veðursins en Rögnvaldur sagði enga ástæðu fyrir fólk að vera á ferðinni eins og spáin væri. „Eins og var um daginn þá var slæmt veður en það reyndist vel að fólk á höfuðborgarsvæðinu hélt sig heima og gerði þannig snjómoksturstækjum auðvelt fyrir.“
Rögnvaldur sagði að þeir vissu af fólki á hálendinu: \"Það eru þrír hópar á leiðinni yfir hálendið og Landsbjörg er að fylgjast með þeim.“