Fremur heimska að verki en illvilji

"Í allri hinni hörmulegu átakasögu íslenskra jafnaðarmanna eru engin fordæmi fyrir slíku að finna," skrifar Sighvatur Björgvinsson fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins og einn stofnanda Samfylkingarinnar í Morgunblaðið í dag og fer óvægnum orðum um ómálefnalegt framboð gegn sitjandi formanni á síðustu stundu eins og landsmenn urðu vitni að um helgina á landsfundi Samfylkingarinnar. Hann segir engin fordæmi fyrir því "að til átaka sé efnt um forystu flokks án þess að forsaga hafi verið að slíku, án þess að tiltekin hafi verið nokkur minnstu átaka- eða deiluefni ..." Og bætir svo við: "Þessi hörmungarsaga er mér og mínum sorgarsaga." Og kveðst þekkja sögu sinna afla: "Engin dæmi eru slíks tilræðis í allri átakasögunni. Engum úr hópi einörðustu andstæðinga hreyfingar jafnaðarmanna gæti hafa tekist annað eins."


Sighvatur telur hér heimsku ráða för fremur en illvilja og segir rétt að trúa því: "En heimska getur unnið meira tjón en jafnvel illvilji. Tjónið var unnið. Það á svo eftir að koma fram hversu mikið það er."


Grein Sighvats er birt á viðhafnarstað í Morgunblaðinu í morgun.