Líkkista notuð við vígslu oddfellow?

Fyrrverandi féhirðir Oddfellow reglunnar á Íslandi sakar regluna um stórfelld skattalagabrot. Segist hann hann hafa hætti í reglunni vegna fjármálamisferlis. Stundin greinir frá þessu og kemur fram í viðamikilli úttekt blaðsins að eignir reglunnar séu þrír milljarðar króna.

Féhirðirinn, Ómar Sigurðsson, fyrrverandi félagi í Oddfellowreglunni hefur kært stjórn reglunnar til fjármálaráðherra fyrir stórfelld skattalagabrot. Samkvæmt bréfi fjármálaráðuneytisins hefur þeirri kæru verið vísað áfram til ríkisskattstjóra til meðferðar.

„Ómar segist í samtali við Stundina hafa orðið vitni að ítrekuðum brotum stúka við skil á virðisaukaskatti,“ segir á vef Stundarinnar sem birtir úttekt blaðsins í síðustu viku.

Fram kemur að leiðtogar reglunnar hafi þessum ásökunum.

„Manni finnst mjög vont að sitja í þeirri stöðu að við sem erum ásakaðir, við höfum ekkert í höndunum um að við höfum verið kærðir. Við höfum ekkert bréf fengið frá neinu yfirvaldi um að það liggi inni kæra á okkar hendur,“ segir Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varastórsír Oddfellowreglunnar, í samtali við Stundina.

Sumt vekur sérstaka athygli í umfjöllun Stundarinnar á innviðum reglunnar en henni er sagt svipa til Frímúrara og sverja reglubræður þagnareiða um hvað fer fram á fundum.  Lýsir fyrrum féhirðir samtakanna vígslu inn í regluna og segir að við vígslu nýrra meðlima sé spurt út í heilsufar og fjárhag. Þá segir féhirðirinn fyrrverandi að beinagrindur og líkkista komi við sögu þegar nýir menn séu vígðir auk þess sem þeir séu lokaðir einir inni í skáp um tíma.

Úttekt blaðsins er viðamikil en tekið er fram að ekki hafi náðst að sannreyna sumt sem haft er eftir féhirðinum fyrrverandi.

Hringbraut hefur sent fyrirspurnir til hlutaðeigandi vegna málsins.

Sjá frétt Stundarinnar hér.