Ragnar Önundarson viðskiptafræðingur gerir athugasemd við ummæli fjármálaráðherra í færslu á facebook.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra brást misvel við þegar hann mætti í Kastljósviðtal til Helga Seljan sem spurði ráðherra ýmissa áleitinna spurninga í gærkvöld. Ein af þeim sneri að fjölskyldutengslum Bjarna við kaupanda kortafyrirtækisins Borgunar af Landsbankanum og taldi Bjarni það „ómerkilegar dylgjur“ eins og Hringbraut hefur fjallað um. Bjarni ræddi fleiri mál s.s. fyrirhugaða sölu á Landsbankanum.
Ragnar deilir frétt hringbrautar á vefnum og ávarpar Bjarna Benediktsson á facebook:
„Vitað er að bankar veraldarinnar eru drifhjólið á bak við sívaxandi samþjöppun auðs. Ekki segja okkur Bjarni að það sé tilviljun að brauðmolarnir sem hrynja af borðum bankanna lendi í vösum ríka fólksins. Það minnir of mikið á það þegar ræningjarnir í Kardimommubænum sögðu að brauðið hefði bara dottið oní vasa þeirra í bakaríinu.“