Um hádegisbil í gær var lögreglunni á Suðurlandi tilkynnt um líkfund á bökkum Ölfusár. Líkið er talið vera af Ríkharði Péturssyni, sem hefur verið saknað í rúmt ár, eða síðan hann fór af heimili sínu á Selfossi þann 23. janúar 2018. Mbl.is greinir frá.
Göngumaður gekk fram á líkið á bökkum Ölfusár við Arnarbæli í Ölfusi og tilkynnti lögreglu um líkfundinn.
Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi ásamt tæknideild lögreglu höfuðborgarsvæðisins og kennslanefnd ríkislögreglustjóra vinna nú að rannsókn málsins.
Páls enn saknað
Páll Mar Guðjónsson, sem ók bifreið sinni í Ölfusá mánudagskvöldið 25. febrúar síðastliðið, hefur ekki enn fundist.
Formleg leit hefur ekki staðið yfir síðan á sunnudaginn 3. mars en Björgunarfélag Árborgar, sérsveit ríkislögreglustjóra og sérfræðingar Landhelgisgæslu munu framkvæma mælingar á lögun og dýpi gjárinnar neðan brúar yfir Ölfusá á laugardaginn 16. mars.
Búnaður þessara aðila ásamt búnaði í einkaeigu mun þá verða notaður við mælingarnar og standa vonir til þess að með mælingunum verði ljóst hvort og hvað, ef eitthvað, er hægt að gera til að ná flaki bifreiðarinnar úr ánni. Ljóst er að margt þarf að ganga upp til að góður árangur náist með mælingunum.