„Vegfarandi um Sprengisandsleið kom að látnum manni utan vegar skammt norðan við Vatnsfell um 11:30 í gærdag. Líkið er af erlendum ferðamanni og er unnið að því að upplýsa aðstandendur hans um látið með aðstoð ræðismanns viðkomandi ríkis.“
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. Þar segir enn fremur:
„Af gögnum mannsins og ummerkjum að ráða virðist hann hafa verið einn á ferð og ekkert á vettvangi bendir til saknæms athæfis. Rannsókn málsins er í höndum lögreglu á Suðurlandi og er gert ráð fyrir að krufning verði framkvæmd á n.k. þriðjudag.
Frekari upplýsingar verða ekki gefnar fyrr en staðfest hefur verið að aðstandendur hafi fengið upplýsingar um málið.“