Líkamsleifar komu í veiðarfæri á faxaflóa

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til rannsóknar líkamsleifar sem fundust á Faxaflóa nýverið á töluverðu dýpi. Ekki liggur fyrir af hverjum líkamsleifarnar eru en kennslanefnd ríkislögreglustjóra vinnur að þeim hluta málsins. 

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að upphaf málsins megi rekja til veiða fiskibáts á norðanverðum Faxaflóa í síðasta mánuði. „Báturinn lagði út veiðarfæri á töluverðu dýpi, en þegar dregið var inn reyndust líkamsleifar fylgja með í netinu.“

Síðan segir í tilkynningunni: „Í framhaldinu var skipulagt leitarsvæði og síðan var haldið á vettvang nokkru síðar með búnað sem hæfði aðstæðum, en um flóknar aðgerðir var að ræða. Sérútbúinn kafbátur var sendur niður til að taka ljósmyndir og sónarmyndir, en á sjávarbotninum reyndust vera líkamsleifar. Ekki reyndist unnt að ná þeim upp að svo stöddu enda aðstæður á vettvangi erfiðar, m.a. vegna sjólags og dýpis. Menn urðu því frá að hverfa og sæta færis, en nokkrum dögum síðar var aftur haldið á vettvang og þá tókst að ná upp líkamsleifunum. Við það var notaður annar kafbátur, sem var sömuleiðis sérútbúinn fyrir verkefni af þessu tagi.\"

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segist ekki ætla að tjá sig frekar um málið á meðan frekari niðurstaða liggur ekki fyrir. Aðgerðirnar við að endurheimta líkamsleifarnar voru umfangsmiklar, en við þær naut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu góðrar aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslunnar, Teledyne og Árna Kópssonar, að sögn lögreglunnar.